Vertu þín eigin fyrirmynd

Ertu tilbúin að stíga út úr hamstrahjóli skyldurækninnar og hætta að svíkja loforðin við sjálfa þig? Ertu tilbúin að setja sjálfa þig í forgang (þó fyrr hefði verið) og byrja að lifa lífinu á þínum eigin forsendum? Ertu tilbúin að upplifa frelsi í lífinu út frá þinni eigin skilgreiningu? Ef svo er skaltu taka kröftuga ákvörðun fyrir sjálfa þig og skrá þig! Um leið og þú gerir það sendir þú sjálfri þér kröftug skilaboð um að þú sért tilbúin í breytingar!

Ég er tilbúin! >

Hækkaðu viðmiðin þín

Settu þér stór markmið

Skapaðu líf sem þú elskar

Upplifir þú ...

  • Að þú sért stöðugt að keppast við að vera „nógu góð“ en finnur samt fyrir tómarúmi?  

  •  Að lífið þitt sé fullt af „ég þarf“ og „ég verð“ hugsunum sem halda aftur af þér?  

  •   Að þú sért föst í ótta við mistök og finnur ekki leiðina til að skapa líf sem þú elskar?  

  •  Að þú viljir eitthvað meira, en veist ekki hvernig þú átt að stíga fyrstu skrefin?

Hvað ef

  • Þú gætir losnað við „ég þarf“ hugsanir og skapað líf sem er í takt við þínar eigin langanir og drauma?  

  •  Þú gætir byggt upp sjálfstraust og tekið meðvitaðar, kröftugar ákvarðanir í átt að því lífi sem þú þráir?  

  •  Þú gætir öðlast skýra framtíðarsýn og haft verkfæri til að breyta hamlandi hugsunum og verða þín eigin fyrirmynd?  

  •  Þú gætir vaknað á hverjum morgni full af orku, gleði og þakklæti fyrir lífið sem þú hefur skapað?

Þú þarft ekki að vera alls staðar og útum allt – stöðugt að reyna að standa undir öllum kröfum og væntingum sem gerður eru til þín.

Það sem skiptir máli er að beina athygli þinni að því sem þú vilt raunverulega og því sem veitir þér gleði. Þú átt skilið að lifa lífi sem er ekki bara til að „standa undir væntingum“, heldur lífi sem þú elskar að vakna inn í á hverjum degi.

Hvernig myndi lífið þitt líta út ef ég gæfi þér verkfæri, ráð og aðferðir sem þú þarft til að ná þeim árangri sem þú vilt?

Ímyndaðu þér að þú hafir öll verkfærin sem þú þarft til að skapa líf sem þú elskar. Þú vaknar á hverjum morgni með skýra framtíðarsýn, innri frið og sjálfstraust til að takast á við daginn.

  • Þú lærir hvernig þú getur umbreytt neikvæðum hugsunum í hvetjandi og kröftugar hugsanir.
  • Þú veist hvernig á að setja skýr markmið og taka kröftugar ákvarðanir sem styðja við framtíðarsýn þína.
  • Þú upplifir frelsi frá skyldurækni og finnur gleðina í því að lifa lífi sem er í takt við þínar raunverulegu langanir.

 

 

Vertu með! >

Nýtt á netinu!

Vertu þín eigin fyrirmynd

Vertu þín eigin fyrirmynd er mitt vinsælasta námskeið og það er loksins komið á netið! 


Á námskeiðinu **Vertu þín eigin fyrirmynd** leiði ég þig í gegnum 8 skrefa umbreytingarferli sem hjálpar þér að losna við sjálfsefann og „ég þarf“ hugsanir, hækka viðmiðin þín og skapa líf sem þú elskar. Þú færð öll verkfærin, skýrleikann og stuðninginn sem þú þarft til að taka kröftugar ákvarðanir og breyta lífi þínu.

Að námskeiðinu loknu...


Í þessum 8 skrefum lærir þú að: 

  • Auka meðvitund þína um hvernig hugsanir þínar móta líf þitt.

  • Setja þér skýr markmið sem styðja við þína framtíðarsýn.

  • Hækka viðmið þín og skuldbinda þig til að standa með sjálfri þér.

  • Lifa í takt við þínar raunverulegu langanir með frelsi, gleði og vellíðan.



    Vertu með og taktu fyrsta skrefið í átt að framtíð sem þú ert stolt af að kalla þína eigin.


    „Ég var einu sinni þar sem þú ert núna.“
    Ég veit hvernig það er að lifa lífi sem einkennist af „ég þarf“ og „ég verð“ hugsunum, stöðugri pressu og óánægju. Það tók mig tíma, en ég lærði hvernig ég gat breytt lífi mínu með því að losa mig við hamlandi hugsanir og skuldbinda mig til að skapa framtíð sem ég elska. Þessi vegferð hefur nú orðið að 8 skrefa ferli sem ég vil deila með þér – svo þú getir líka upplifað þessa breytingu.

Ég er tilbúin í líf sem ég elska! >

Það sem þú færð…

01.

Persónuleg leiðsögn

Þú færð aðgang að 8 vikna námskeiði með vel uppbyggðum kennslustundum sem leiða þig í gegnum 8 skrefa umbreytingarferlið – frá „ég þarf“ hugsunum yfir í frelsi og vellíðan. Þú munt læra að taka stjórnina á lífi þínu með skýrleika og sjálfstrausti.

02.

Vikulegar kennslustundir

Vikulegir lifandi kennslufundir með mér þar sem þú færð tækifæri til að kafa dýpra, fá skýr svör við spurningum þínum og stuðning til að stíga næstu skref. Við vinnum með raunaðstæður þínar og tryggjum að þú finnir þinn innri styrk.

03.

Sérsniðnar æfingar og verkefni

Hver vika inniheldur verkleg verkefni og spurningar sem hjálpa þér að innleiða það sem þú lærir strax í þínu daglega lífi. Þessar æfingar eru hannaðar til að auka meðvitund, skýrleika og sjálfstraust.

04.

Verkfærakista fyrir framtíðina

Þú munt byggja upp þína eigin verkfærakistu sem inniheldur öll þau verkfæri sem þú þarft til að halda áfram að vaxa og þróast löngu eftir að námskeiðinu lýkur.

05.

Innri kennsluvefur

Þú færð aðgang að öllum kennslustundum, vinnubók og aukaefni inn á innri vef námskeiðsins í heilt ár! Þetta er hannað til að þú getir unnið á eigin hraða og endurskoðað efnið hvenær sem þörf krefur.

06.

Stuðningur og samfélag

Aðgangur að lokuðu samfélagi kvenna sem eru á svipaðri vegferð og þú. Þetta er öruggt rými þar sem þú getur deilt upplifunum þínum, fengið innblástur og orðið hluti af samfélagi sem styður þig á þinni vegferð.

Það sem konurnar segja...

Margir tugir kvenna hafa nú þegar farið í gegnum þetta vinsæla námskeið sem loksins er orðið aðgengilegt á netinu fyrir þig! 

Elín


Ég hef verið á námskeiði/um hjá Dögg í að verða 2 ár og sé sko ekki eftir því að hafa skráð mig.  Mínar helstu breytingar eftir að ég fór að sækja námskeið hjá Dögg eru að hugur minn er rólegri, ég á auðveldara með að setja mér markmið og standa við þau. Ef þú ert að hugsa um að skrá þig á námskeið hjá Dögg þá áttu ekki að hugsa þig um, bara skrá þig. Því hik er sama og að tapa.

Helena


Það er enginn tími betri en núna til að byrja að vinna með Dögg ef þú vilt gera breytingar á þínu lífi, svo ekki hika! Dögg er algjörlega einstök, afar jákvæð og hvetjandi. Henni tekst afar vel að feta þennan gullna meðalveg að deila þekkingu og eigin reynslu. Hún deilir af ástríðu þeirri þekkingu sem hún hefur aflað sér sem hjálpar okkur að verða betri útgáfa af okkur sjálfum og sömuleiðis reynslu sinni úr daglegu lífi þar sem hún hefur sjálf notað þekkinguna með góðum árangri.

Berglind


Það er óhætt að segja að námskeiðin hjá Dögg hafi breytt hugsunum mínum, og þar með lífi mínu. Maður er fljótur að setjast aftur í farþegasætið í lífinu þegar maður missir meðvitund um eigið líf og því er námskeið hjá Dögg frábært til þess að fá mann til þess að setjast í bílstjórasætið, opna augun og taka meðvitaðar ákvarðanir. 

Ferlið

01.

Það er takmarkað pláss í boði. Skráðu þig strax í dag! 

02.

Þú færð strax aðgang að innri vef og efni sem ég leiði þig svo í gegnum.

03.

Stígðu inn í nýtt framtíðarlíf þar sem þú nærð markmiðum þínum og yfirstígur allar hindranir. 

Spurningar og svör

Ertu enn með spurningu? Endilega hafðu samband við okkur [email protected]

Ég er tilbúin!

Gaman að kynnast þér!

Ég er Dögg, lífsþjálfi með sálfræðimenntun sem hefur ástríðu fyrir því að hjálpa konum að umbreyta lífi sínu.

Ég veit hvernig það er að vera föst í óþægilegu mynstri skyldurækni og „ég þarf“ hugsana. Ég hef sjálf gengið í gegnum vegferð þar sem ég lærði að losa mig við ótta, hætta að sætta mig við minna en ég á skilið og skapa líf sem ég elska að vakna inn í á hverjum degi.

Með náminu mínu og ótrúlegri ástríðu, ásamt eigin lífsreynslu og því að hafa hjálpað mörgum konum að stíga inn í sitt sanna sjálf, hef ég þróað þetta 8 skrefa ferli. Það er byggt á árangursríkum aðferðum sem hjálpa þér að fara frá því að rétt svo lifa af yfir í að blómstra í krafti þínum.

Á þessu námskeiði leiði ég þig skref fyrir skref í átt að frelsi, gleði og vellíðan. Þú færð verkfærin og stuðninginn sem þú þarft til að taka stjórn á lífi þínu, losa þig við hamlandi hugsanir og verða þín eigin fyrirmynd.

Ég er hér til að styðja þig á þinni vegferð – og ég hlakka til að sjá þig blómstra.